Jöfursbás 5C
112 Reykjavík
Jöfursbás 5C (íbúð 404) er 3ja herbergja horníbúð 72,4fm. á fjórðju hæð, þar af geymsla 6,2fm. Innifalið er merkt bílastæði í bílakjallara. Íbúðin er staðsett í nýju hverfi í Gufunesinu og er hún afar skemmtilega hönnuð með stofu, eldhúsi, baðherbergi og tveimur svefnherbergjum. Gólfhiti er í allri íbúðinni og gólfsíðir gluggar. Svalirnar snúa til suðurs út frá stofunni og skín sólin inn alveg þar til hún sest á kvöldin, íbúðin er því afar björt. Í íbúðinni er aukin lofthæð eða allt að 280cm. Innréttingarnar eru sérsmíðaðar og ná til lofts, skápapláss er mjög gott. Vandað parket er á gólfunum og veggirnir ný málaðir. Quartz steinn á borðplötum og vaskarnir undirlímdir. Á veröndinni er snjóbræðslukerfi í göngustígunum með fallegri næturlýsingu. Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun íbúðarinnar en í henni má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit. Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsinu og baðherberginu. Flísar á votrýmum og parket á aðalflötum íbúðar er frá Ebson en eldhústækin frá AEG.
Lýsing íbúðar:
- Forstofa með innbyggðum fataskáp sem nær til lofts.
- Eldhús með góðu skápaplássi og nær innrétting til lofts.Út frá eldhúsi er stór gólfsíður gluggi.
- Stofa með gólfsíðum glugga og útgengi á suðursvalir
- Baðherbergi flísalagt 60x60cm ljósgráum flísum frá EBSON bæði gólf og hluti veggja, með vandaðri innréttingu með Quartz stein á baðinnréttingu frá Technistone. Tenging fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu á baði.
- Hjónaherbergi mjög rúmgott með fataskápum til lofts
- Svefnherbergi með vönduðum fataskáp sem nær til lofts.
- Geymsla merkt íbúðinni í kjallara
- Hjóla- og vagnageymsla í sameign
- Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl
- Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar
Hverfið: Við Eiðsvík í Gufunesi er að rísa spennandi íbúðabyggð í gömlu iðnaðarhverfi sem nú hýsir kvikmyndaver og fyrirtæki í skapandi greinum. Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi. Vatnastrætó, ylströnd, göngubrú út í Viðey og góðir göngu- og hjólastígar er meðal þess sem mun einkenna þetta skemmtilega hverfi. Það er einstakt að eiga kost á slíkri náttúruperlu í miðri höfuðborginni. Það er stutt í alla þjónustu, hvort sem það er í verslun, skóla, leikskóla eða íþróttamannvirki. Í Spönginni má m.a. finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla. Stutt er í Borgaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli. Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan. Allir innviðir í hverfinu eru því sterkir.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Geymsla
Svalir
Bílskúr
Eldhús
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Fiskar leyfðir
Nagdýr leyfð
Fuglar leyfðir
Mánaðarleiga
350.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
1 des 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
350.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 700.000 krInnflutningsverð
1.050.000 kr
Leigt út af Birta Margrét Zimsen