




Lautasmári 6
201 Kópavogur
Falleg 3ja herbergja endaíbúð í Lautasmára 6. Langtímaleiga í boði. Björt íbúð á 3. hæð hússins.
- 2 rúmgóð svefnherbergi
- Baðkar + sérsturta
Leigueignin skiptist í hol, stofu, eldhús, svalir, 2 svefnherbergi, þvottahús og geymslu.
Gengið er inn í hol með fataskáp. Stofa og borðstofa eru í sama rými með útgengt út á suðursvalir. Í eldhúsi er falleg hvít innrétting og góður borðkrókur. Þar fyrir innan er þvottahús með vask og tengi. Bæði svefnherbergin eru rúmgóð með góðum fataskápum. Baðherbergi er með innréttingu, baðkari og sérsturtu! Sérgeymsla er í sameign ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu.
Í garðinum er gott leiksvæði fyrir börn og umhverfið er sérlega fjölskylduvænt.
Laus 10 september jafnvel nokkrum dögum fyrr. Leiguábyrgð skal vera andvirði 3ja mánaða eða eftir samkomulagi.
Fylgifé
Svalir
Eldhús
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hússjóður innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hiti innifalinn
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
355.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
10 sep 2026
Leigutímabil
12 - 20 mánuðir
Fyrsti mánuður
355.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 1.065.000 krInnflutningsverð
1.420.000 kr
Leigt út af HS Fasteignaráðgjöf ehf.