




Kleppsvegur 8
105 Reykjavík
Björt tveggja herbergja íbúð í Reykjavík!
Tveggja herbergja íbúð á 4. og efstu hæð í 105 Reykjavík. Íbúðin er 61,1 m² á stærð með stórum gluggum og suður svölum sem snúa út í garð með útsýni yfir Reykjavík.
Íbúðin er til leigu án húsgagna. Það er uppþvottavél og ísskápur en einnig er pláss fyrir þvottavél í eldhúsinu - annars er mjög gott þvottahús niður í kjallara sem fáir nota með iðnaðarþvottavél, þurrkara og stóru þurrk rými. Geymsla fylgir ekki með leigunni.
Staðsetningin er frábær með stuttu í verslanir, þjónustu og almenningssamgöngur. Rólegt og gróið hverfi með góðum göngu- og hjólastígum.
Leigan er 325.000 kr á mánuði og er föst. Innifalið í leiguverði er hiti, rafmagn og hússjóður. Farið er fram á tveggja mánaða tryggingu og leigusamningur verður þinglýstur. Íbúðin er laus frá byrjun september 2026.
Athugið að myndirnar eru eldri og húsgögn/tæki sem sjást á myndum fylgja ekki endilega með. Íbúðin er leigð án húsgagna. Uppþvottavél og ísskápur fylgja.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Þvottavél
Þurrkari
Eldhús
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 2 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
325.000 kr
2 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
4 sep 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
325.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 650.000 krInnflutningsverð
975.000 kr
Leigt út af Giovanna