




Fossvegur 4
800 Selfoss
Falleg og björt 2ja herbergja íbúð til leigu í rólegu hverfi miðsvæðis á Selfossi. Íbúðin leigist með húsgögnum í 24 mánuði með möguleika á framlengingu.
Um er að ræða 77,3 fm íbúð á 3. hæð í lyftublokk ásamt bílastæði í bílakjallara með hleðslustöð. Flísalögð forstofa með góðum fataskáp og inn af forstofu er rúmgóð geymsla/skrifstofa með glugga sem gefur m.a. möguleika á öðru svefnherbergi. Alrými og hjónaherbergi eru parketlögð. Eldhús er opið inn í stofu með góðri innréttingu, keramikhelluborði, stórum ísskáp og ofn í vinnuhæð. Stofa er björt og útgengt út á góðar svalir með fallegu útsýni yfir Ölfusið og til fjalla. Hjónaherbergi er rúmgott og með góðu skápaplássi. Baðherbergi er með flísum á gólfi, sturtuklefa og innréttingu fyrir þvottavél, möguleiki að bæta við þurrkara. Sameign er snyrtileg og með hjólageymslu. Nóg er af bílastæðum fyrir utan blokkina.
Hiti, rafmagn og internet innifalið í leiguverði. Leiga greiðist 1. hvers mánaðar. Farið er fram á 2ja mánaða tryggingu.
Eingöngu reyklausir, reglusamir og skilvísir leigjendur koma til greina. Meðmæli frá fyrri leigusala eða atvinnuveitanda æskileg.
Fylgifé
Þvottavél
Örbylgjuofn
Ísskápur
Uppþvottavél
Bílskúr
Svalir
Eldhús
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 3 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
300.000 kr
Leigutímabil
6 - 24 mánuðir
Fyrsti mánuður
300.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 600.000 krInnflutningsverð
900.000 kr
Leigt út af Karl Jakob Bragason