




Hvammsgerði 10
108 Reykjavík
Falleg og björt 3 herbergja risíbúð við Hvammsgerði 10, Reykjavík — leigist með húsgögnum og öllum helsta búnaði. Íbúðin er laus frá 1. september 2026.
Eignin er í þríbýli og er skráð samtals 60,2 fm. Íbúðin er að hluta til undir súð og er gólfflötur því töluvert stærri en uppgefnir fermetrar. Íbúðin var endurnýjuð að innan árið 2019 og skiptist í stofu, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi.
Björt og falleg stofa með stórum kvisti og harðparketi á gólfi. Þar er sófi, sófaborð, hillur og hringlaga stækkanlegt borð með tíu stólum.
Eldhús með fallegri hvítri innréttingu, bakarofni, helluborði, innbyggðri uppþvottavél og innbyggðum ísskáp, harðparket á gólfi. Í eldhúsinu fylgir allur helsti búnaður: hnífapör, glös, diskar, pottar og pönnur.
Rúmgott hjónaherbergi með útgengi út á svalir og harðparketi á gólfi. Þar er 180 cm hjónarúm og skrifborð. Annað svefnherbergi er einnig rúmgott með harðparketi á gólfi, 140 cm rúmi, skrifborði og svölum.
Baðherbergi með flísum á veggjum, innréttingu, sturtu með gleri, upphengdu salerni og handklæðaofni, flotað gólf.
Sérgeymsla er undir útitröppum og sameiginlegt þvottahús á jarðhæð þar sem þvottavél fylgir. Sameiginlegur inngangur með íbúð á fyrstu hæð.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Geymsla
Þvottavél
Eldhús
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 4 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
310.000 kr
14 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
1 sep 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
310.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 620.000 krInnflutningsverð
930.000 kr
Leigt út af Kolbeinn Arnarson