




Grenidalur 12D
260 Reykjanesbær
Rúmgott og bjart 4ra herbergja endaraðhús með palli við Grenidal. Um er að ræða vel skipulagt 98,9 fm, 4ra herbergja endaraðhús á góðum stað við Grenidal. Húsið er bjart og býður upp á góða nýtingu á rými. Sérstakur kostur er pallur á austurhlið og þrjú bílastæði sem fylgja eigninni. Hundahald, kettir og hænsnahald er leyft.
ATH: Íbúðin er í leigu og því um ársgamlar ljósmyndir að ræða.
Eignin skiptist í: Forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Anddyri/Forstofa: Lokaðir skápar með fatahengi og skúffum. Eldhús: Með góðri innréttingu og miklu skápaplássi. Ísskápur og uppþvottavél fylgja með. Það er eyja með góðu skúffuplássi og innbyggðum spanhellum. Stofa: Björt og opin. Parket á gólfi. Það eru dyr út á pall sem snúa í austur frá stofu. Svefnherbergin eru þrjú. Parket á gólfum og skápar í öllum herbergjum. Baðherbergi með flísum á gólfi. Nægt skápapláss og tvö stæði fyrir þvottavél og þurrkara. 11kW hleðslustöð fyrir rafbíla við bílstæðin þrjú.
Leiguverð er 370.000 kr. á mánuði. Leigt er út 1 ár í senn með með möguleika á endurnýjun. Trygging skal vera ígildi 3 mánaðar leigu. Ekki er tekið við bankaábyrgð. Það er bannað að reykja innan eða utan hússins. Frekari upplýsingar veittar við fyrirspurnum. Hægt er að bóka skoðun.
Fylgifé
Ísskápur
Örbylgjuofn
Uppþvottavél
Þvottavél
Eldhús
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hundar leyfðir
Kettir leyfðir
Mánaðarleiga
370.000 kr
Laus frá
1 Sep 2025
Leigutímabil
12 mánuðir
Fyrsti mánuður
370.000 kr
Tryggingarfé
3 mánuðir / 1.110.000 krInnflutningsverð
1.480.000 kr
Leigt út af Atli Stefán Helgason