




Hagamelur 17
107 Reykjavík
Falleg 3ja herbergja kjallaraíbúð í Vesturbæ – hentar vel tveimur vinum – laus frá 1. september 2026
Til leigu er einstaklega sjarmerandi og vel skipulögð 50–55 fm kjallaraíbúð á rólegum og eftirsóttum stað í Vesturbæ Reykjavíkur. Íbúðin er í fallegu og reisulegu húsi og í göngufæri við verslun og þjónustu.
Lýsing: Íbúðin skiptist í tvö rúmgóð svefnherbergi, bæði með hjónarúmum, góðum fataskápum og fallegum gluggum. Stofan er björt og notaleg með tveimur gluggum, svefnhornsófa, sjónvarpi og borðstofukrók.
Eldhúsið er nýuppgert og fullbúið með öllum helstu tækjum og eldhúsbúnaði, þar á meðal ísskáp með frysti, ofni, helluborði, leirtaui, pottum og pönnum – tilbúið til notkunar frá fyrsta degi. Eldhúsið er með glugga og nýtist vel þrátt fyrir nett stærð.
Baðherbergið er nýuppgert, með walk-in sturtu og góðri loftræstingu.
Í íbúðinni er lítil geymsla með hillum.
Aðgangur er að sameiginlegu þvottahúsi þar sem leigjendur hafa sér þvottavél. Eigandi notar vélina stuttlega einu sinni í viku til viðhalds.
Útsýni er yfir garð og leigjendur hafa aðgang að honum (aðgengi er um húsið).
Staðsetning: Stutt í alla helstu þjónustu, m.a. Melabúðina, Vesturbæjarlaug og fallegar gönguleiðir við sjávarsíðuna.
Leiga: Leiguverð er 360.000 kr. á mánuði, og er hiti, rafmagn, hússjóður og internet innifalið (miðað við eðlilega notkun).
Annað:
Hentar sérstaklega vel tveimur vinum sem vilja leigja saman
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr eftir samkomulagi
Laus frá 1. september 2026
Áhugasamir vinsamlegast sendi skilaboð með stuttri kynningu á sér.
Fylgifé
Ísskápur
Þvottavél
Sameiginlegt eldhús
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
360.000 kr
12 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
1 sep 2026
Leigutímabil
3 - 15 mánuðir
Fyrsti mánuður
360.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 720.000 krInnflutningsverð
1.080.000 kr
Leigt út af Bergljót Arnalds