

Lækjasmári 2
201 Kópavogur
TIL LEIGU - FALLEG OG RÚMGÓÐ 95 FM. 3JA HERB. ÍBÚÐ Í LYFTUHÚSNÆÐI MEÐ HÁLF YFIRBYGGÐUM SUÐVESTUR SVÖLUM.
Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 94,9 fm.
Um er að ræða fallega og rúmgóða 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í steinsteyptu lyftuhúsnæði byggðu árið 1996. Íbúðin er skráð 88,5 fm. og sér geymsla 6,4 fm. Gengið er inn í anddyri/gang sem liggur inn íbúðina að holi og stofunni. Eldhúsið er til hægri við holið, hálf opið í borðstofuna og stofuna. Strax til hægri við inngang er þvottahúsið og baðherbergið þar við hliðina á ganginum. Svefnherbergin eru tvö, bæði mjög rúmgóð hlið við hlið vinstra megin á ganginum. Gengið er út á rúmgóðar suð-vestur svalir úr stofunni, stór hluti þeirra er yfirbyggður. Góð 6,4 fm. geymsla fylgir íbúðinni í kjallara. Einnig er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæðinni.
Anddyri/gangur: Innbyggður fataskápur er í anddyri, parket er á gólfum. Stofur: Bjartar með parketi á gólfum, gengið út á suðvestur rúmgóðar svalir. Eldhús: Gott skápa- og borðpláss, ný tæki og helluborð, parket á gólfi. Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, rúmgóð sturta og sér baðkar, upphengt salerni. Svefnherbergin: Bæði herbergin eru rúmgóð með parketi á gólfum, innbyggðir góðir fataskápar. Þvottahús: Flísar á gólfi og góð innrétting með vélum í vinnuhæð. Svalir: Skjólgóðar svalir með góðri grillaðstöðu, snúa í suð-vestur og yfirbyggðar að hluta. Geymsla: Sér 6,4 fm. geymsla fylgir í kjallara með hillum. Sameign: Snyrtileg sameign og stigagangur, sameiginleg rúmgóð hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.
- Uppþvottavél, þvottavél, þurrkari og ísskápur fylgja íbúðinni.
- Ljósleiðari er komin inn í íbúðina.
- Myndavéladyrasími.
STUTT ER Í LEIK- OG GRUNNSKÓLA AUK ÞESS SEM EINSTAKLEGA STUTT ER Í ÍÞRÓTTASVÆÐI BREIÐABLIKS. ÍBÚÐIN ER EINNIG Í GÖNGUFÆRI VIÐ SMÁRALIND AUK ÞESS AÐ VERA Í NÁMUNDA VIÐ FRÁBÆRT VERSLUNAR- OG ÞJÓNUSTUSVÆÐI!
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Þurrkari
Þvottavél
Svalir
Geymsla
Eldhús
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
350.000 kr
6 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
15 sep 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
350.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 700.000 krInnflutningsverð
1.050.000 kr
Leigt út af Ólöf Stefánsdóttir