Milli Leiguskjóls ehf. og notenda (leigusala og leigutaka) þjónustunnar myigloo.is
1. Almennt
Þessir almennu viðskiptaskilmálar („skilmálar“) gilda um notkun á myigloo.is, sem rekinn er af Leiguskjóli ehf. (hér eftir „Leiguskjól“ eða „félagið“), og um viðskipti Leiguskjóls við alla notendur þjónustunnar, þ.e. leigusala og leigutaka (hér eftir saman nefndir „viðskiptavinir“ eða „notendur“). Skilmálar þessir innihalda almenn ákvæði um réttindi og skyldur beggja aðila.
Í tilvikum þar sem settir eru sérstakir skilmálar fyrir tiltekna þjónustu eða vöru Leiguskjóls ganga þeir sérskilmálar framar ákvæðum þessara almennu skilmála ef á reynir. Að öðru leyti gilda almennu skilmálarnir til fyllingar um viðskiptin. Með því að nota þjónustu Leiguskjóls á myigloo.is samþykkir notandi skilmála þessa.
Þessir skilmálar, ásamt persónuverndarstefnu, kökustefnu og notendaskilmálum Igloo, mynda sameiginlega samning milli notanda og Igloo.
Þjónustan er eingöngu ætluð einstaklingum og lögaðilum sem eru 18 ára eða eldri.
2. Um Leiguskjól ehf. og myigloo.is
Leiguskjól ehf. er fjártæknifyrirtæki með starfsemi á Íslandi sem rekur stafrænan leiguvettvang undir heitinu myigloo.is. Markmið þjónustunnar er að auðvelda samskipti leigusala og leigutaka og gera þeim kleift að gera með sér leigusamninga rafrænt. Platformið er fyrst og fremst verkfæri fyrir aðila til að koma á viðskiptum sín á milli. Leiguskjól ehf. ber enga ábyrgð á notkun aðila á vefnum, t.d. verðlagningu húsnæðis, takmarkanir, sérákvæði í samningum o.fl. sem hægt er að nýta platformið til.
Leiguskjól leigir sjálft ekki út neinar fasteignir og kemur ekki fram sem leigumiðlun eða fasteignasali. Félagið er einungis milliliður sem auðveldar aðilum leigumarkaðarins að tengjast og eiga rafræn samskipti. Allir leigusamningar sem gerðir eru á myigloo.is eru beinir samningar milli viðkomandi leigusala og leigutaka, og bera þeir aðilar sjálfir fulla ábyrgð á réttum og réttmætum efndum slíkra samninga. Leiguskjól er ekki aðili að leigusamningum sem kunna að komast á í gegnum vettvanginn og hefur ekki íhlutun í kjör, skilmála eða framkvæmd þeirra samninga, utan þess að veita þá tækni- og fjármálaþjónustu sem kveðið er á um í skilmálum þessum.
Leiguskjól ehf. er skráð einkahlutafélag á Íslandi og starfar í samræmi við íslensk lög.
Leiguskjól ehf.Kt. 510906-1520
Sundagarðar 2
104 Reykjavík
Ísland
3. Þjónusta og fjármálavörur
Leiguskjól býður upp á ýmsa þjónustu og fjármálavörur tengdar leigumarkaði í gegnum myigloo.is og Leiguskjol.is. Meðal þjónustuliða í boði eru:
- Leiguvernd leigugreiðslna: Leiguskjól stofnar m.a. leigukröfu fyrir hönd leigusala, tryggir greiðslu fyrsta hvers mánaðar meðan virk ábyrgð er í gildi og býður upp á auka tjónatryggingu vegna tjóns á grundvelli húsaleigulaga.
- Húsaleiguábyrgð: Leiguskjól býður leigutökum upp á húsaleiguábyrgð í formi bankaábyrgðar sem veitt er af Arion banka hf. Þessi þjónusta kemur í stað hefðbundins tryggingafjár þannig að bankinn ábyrgist greiðslur til leigusala að tilteknum skilyrðum uppfylltum, sem eykur fjárhagslegt svigrúm leigjenda þar sem ekki þarf að binda allt tryggingarfé samkvæmt leigusamningi.
- Tjónatrygging: Í samstarfi við tryggingafélagið Vörð býður Leiguskjól upp á tjónatryggingu sem tekur til hugsanlegs tjóns á leigðu húsnæði á leigutíma. Slík trygging er ætlað að vernda hagsmuni leigusala ef skemmdir verða á eign vegna athafna leigjanda meðan á leigu stendur.
Ofangreind þjónusta er valkvæð og notendur geta sjálfir ákveðið hvort þeir nýta hana. Leiguskjól kann að setja fram sérstaka skilmála eða samninga fyrir einstaka vörur (til dæmis gilda sérstakir samningsskilmálar Arion banka um útgáfu bankaábyrgðar og vátryggingaskilmálar Varðar um tjónatryggingu). Slíkir sérskilmálar gilda þá samhliða þessum skilmálum og ganga þeim framar ef ágreiningur væri um einstök atriði.
4. Þjónustugjöld
Fyrir þá þjónustu sem Leiguskjól veitir í tengslum við leigu eru innheimt gjöld sem eru reiknuð af leigufjárhæð og eru sem hér segir:
- Kröfustofnun: 0,3% af hverri innborgaðri leigugreiðslu.
- Greiðslugjald: Greiðandi leigukröfu greiðir 450 kr. til viðbótar við leigugreiðslu.
- Greiðsluvernd — Greitt fyrsta hvers mánaðar: 1,75% af mánaðarlegri leigufjárhæð
- Leiguvernd: 1,2% af mánaðarlegri leigufjárhæð sem vátryggingin tekur til. Vátryggingin sem liggur að baki Leiguvernd er Leigutrygging Leiguskjóls og Varðar (https://vordur.is/upplysingar/skilmalar/e-38/upplysingaskjal)
- Leiguábyrgð (hlutfallsleið): 15,75% af tryggingarfjárhæð á ári (að viðbættum vöxtum (15%) af greiðsludreifingu og greiðslugjaldi kr. 405 kr.) auk handveðsgjalds kr. 4.900. Útgáfugjald er kr. 5.900.
- Leiguábyrgð (fullt handveð): 18.900 kr. á ári.
Ofangreind gjöld eru innheimt mánaðarlega eða samhliða hverri leigugreiðslu, eftir því sem við á. Leiguskjól skuldfærir gjöldin sjálfkrafa í gegnum kerfi sitt (t.d. með því að draga gjald af innborgaðri leigu áður en hún er skilað til leigusala, eða innheimta gjald frá leigjanda fyrir tryggingarþjónustu). Gjöld þessi kunna að breytast í samræmi við ákvörðun Leiguskjóls hverju sinni. Verði breyting á gjaldtöku verður það tilkynnt skv. kafla 8 í skilmálum þessum.
Allar fjárhæðir eru í íslenskum krónum og kunna að bera virðisaukaskatt samkvæmt gildandi lögum, eftir því sem við á. Leiguskjól mun birta upplýsingar um gildandi þjónustugjöld á vefsíðu sinni og í notendaviðmóti myigloo.is. Viðskiptavinum ber að kynna sér þau gjöld sem gilda á hverjum tíma.
5. Ábyrgð og takmörkun ábyrgðar
Leiguskjól ábyrgist að veita þjónustu sína af bestu getu í samræmi við skilmála þessa. Hins vegar ber félagið enga ábyrgð á árangri eða afleiðingum af notkun þjónustunnar fyrir leigusala eða leigutaka. Leiguskjól ber ekki ábyrgð á gerð, gildi eða efndum þeirra leigusamninga sem notendur myigloo.is gera sín á milli. Félagið er ekki aðili að slíkum samningum og ber því enga lagalega ábyrgð á vanskilum, vanefndum, greiðsludrætti, uppsögn leigjenda, tjóni á húsnæði eða öðru því sem kann að koma upp í tengslum við leiguviðskiptin sjálf milli leigusala og leigutaka. Allir ágreiningar eða kröfur sem kunna að rísa vegna leigusamningsins eru á ábyrgð hlutaðeigandi leigusala og leigutaka.
Leiguskjól og samstarfsaðilar þess (þ.m.t. Arion banki varðandi bankaábyrgðir og Vörður varðandi tryggingar) bera ekki ábyrgð gagnvart notendum á óbeinu tjóni, afleiddu tjóni eða hagnaðarmissi sem kann að hlótast af notkun þjónustunnar eða truflunum á henni. Leiguskjól ábyrgist ekki að vefurinn myigloo.is og tengd þjónusta séu ávallt aðgengileg án truflana eða villna. Leiguskjóli er heimilt að gera tímabundnar öryggis- eða viðhaldsuppfærslur á kerfum sínum sem kunna að valda hlém á þjónustu, og ber félagið ekki ábyrgð á tjóni sem kann að hlótast af slíkum hlém.
Ekkert í þessum kafla takmarkar ábyrgð Leiguskjóls samkvæmt persónuverndarlögum, þ.m.t. lögum nr. 90/2018 og reglugerð (ESB) 2016/679 (GDPR), ábyrgð vegna svika, stórfellds gáleysis eða líkamstjóns af völdum vanrækslu.
Atvik sem teljast til óviðráðanlegra utanaðkomandi aðstæðna (force majeure), svo sem náttúruhamfarir, eldgos, stríð, verkföll, netárásir, alvarleg kerfisbilun, rafmagnstruflanir eða sambærileg atvik sem eru félaginu óviðkomandi, leysa Leiguskjól tímabundið undan efndum þjónustu sinnar á meðan slíkt ástand varir.
Notendur skulu ávallt fara eftir lögum og reglum við notkun myigloo.is. Notandi ber sjálfur ábyrgð á að þær upplýsingar sem hann skráir inn á vettvanginn séu réttar og áreiðanlegar. Leiguskjól ber ekki ábyrgð á neinu tjóni sem hlýst af rangri eða villandi upplýsingagjöf notanda til annarra notenda eða til Leiguskjóls. Brjóti notandi gegn skilmálum þessum eða noti þjónustuna á óheimilan eða ósæmilegan hátt, ber hann sjálfur ábyrgð á því tjóni sem Leiguskjóli eða öðrum aðilum kann að hlótast af slíkri háttsemi. Leiguskjóli er heimilt að vísa notanda úr þjónustunni samkvæmt ákvæðum kafla 7 ef brot eiga sér stað af hálfu notanda.
6. Persónuvernd og vinnsla persónuupplýsinga
Viðskiptavinir veita Leiguskjóli samþykki fyrir vinnslu persónuupplýsinga sinna í tengslum við notkun þjónustunnar. Leiguskjól vinnur persónuupplýsingar notenda í samræmi við gildandi persónuverndarlöggjöf, þ.m.t. lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð (ESB) 2016/679 (GDPR).
Upplýsingar sem kunna að vera unnar fela meðal annars í sér grunnupplýsingar (nafn, kennitala, tengiliðaupplýsingar), fjárhagsupplýsingar sem tengjast leigu (t.d. greiðslusaga, reikningsupplýsingar fyrir leigugreiðslur) og aðrar upplýsingar nauðsynlegar fyrir framkvæmd leigusamnings eða tengdrar þjónustu.
Leiguskjól leggur ríka áherslu á öryggi og trúnað persónuupplýsinga. Félagið beitir viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum öryggisráðstöfunum til að vernda persónuupplýsingar notenda gegn óleyfilegum aðgangi, breytingu, birtingu eða eyðileggingu. Persónuupplýsingum notenda verður einungis miðlað til starfsmanna Leiguskjóls eða samstarfsaðila þess að því marki sem nauðsynlegt er til að veita viðkomandi þjónustu. Til dæmis kann Leiguskjól að miðla ákveðnum gögnum til Arion banka þegar leigutaki sækir um húsaleiguábyrgð, eða til Varðar þegar keypt er tjónatrygging, enda sé slíkt nauðsynlegt fyrir umsókn eða gerð samnings við viðkomandi aðila. Slíkar miðlanir persónuupplýsinga eru ávallt í samræmi við persónuverndarlög.
Leiguskjól mun ekki afhenda persónuupplýsingar notenda til þriðja aðila í öðrum tilgangi en að veita umsamda þjónustuframboð, nema lagaskylda krefji eða notandi hafi veitt samþykki fyrir því. Notandi á rétt á að fá upplýsingar um þær persónuupplýsingar sem Leiguskjól hefur skráð um hann og getur krafist leiðréttingar eða eyðingar rangra eða ófullstæðra upplýsinga, samkvæmt ákvæðum persónuverndarlaga.
Persónuverndarfulltrúi Igloo er aðgengilegur á netfanginu personuvernd@leiguskjol.is. Notandi á rétt á að leggja fram kvörtun til Persónuverndar (personuvernd.is) telji hann að vinnsla persónuupplýsinga brjóti gegn persónuverndarlögum.
Nánari upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga og réttindi notenda er að finna í persónuverndarstefnu Leiguskjóls.
7. Lok þjónustusambands
Viðskiptavini (notanda) er heimilt að slíta þjónustusambandi sínu við Leiguskjól hvenær sem er, enda tilkynni hann það með formlegum hætti til félagsins. Uppsögn af hálfu notanda skal berast Leiguskjóli skriflega, t.d. með tölvupósti, og tekur gildi þegar Leiguskjól hefur staðfest móttöku hennar. Eftir að uppsögn hefur tekið gildi verður lokað á notanda í kerfum myigloo.is og fellur réttur hans til notkunar þjónustunnar niður frá þeim tíma.
Leiguskjól áskilur sér rétt til að segja upp þjónustusambandi við notanda með sanngjörnum fyrirvara. Þá getur Leiguskjól einnig takmarkað eða lokað fyrir aðgang notanda tafarlaust, án fyrirvara, ef veruleg ástæða er fyrir hendi, til dæmis ef notandi brýtur gegn skilmálum þessum, gegn lögum eða reglum, eða misnotar þjónustuna á hátt sem getur valdið Leiguskjóli eða öðrum tjóni. Í slíkum tilvikum kann Leiguskjól jafnframt að gera kröfu um skaðabætur eða viðeigandi úrræði vegna tjóns af völdum notanda, sé þess tilefni.
Lok þjónustusambands leysir hvorki Leiguskjól né notanda undan þeim skyldum sem þegar eru orðnar til á meðan þjónustusambandið varði. Þeir skilmálaþættir sem eðli máls samkvæmt eiga að gilda áfram eftir lok þjónustu munu halda gildi sínu.
Við lok þjónustusambands getur notandi óskað eftir útflutningi gagna sinna (gagnaflutningsréttur skv. 20. gr. GDPR) innan 30 daga frá uppsögn. Notandi getur einnig óskað eftir eyðingu persónuupplýsinga (eyðingarréttur skv. 17. gr. GDPR) að teknu tilliti til lagaskyldu um varðveislu.
8. Gildistaka, breytingar og lögsaga
Skilmálar þessir taka gildi í mars 2026 og gilda frá þeim degi um öll viðskipti notenda við Leiguskjól á myigloo.is.
Leiguskjól áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum, bæta við þá eða fella þá úr gildi eins og þörf krefur. Verði gerðar breytingar á skilmálunum, mun Leiguskjól birta uppfærða útgáfu á vefsíðu sinni (og/eða tilkynna reglulegum notendum með tölvupósti eða í gegnum myigloo.is kerfið). Breyttir skilmálar taka gildi frá og með þeim tíma sem tilgreindur er við birtingu þeirra.
Verulegar breytingar — þar á meðal breytingar sem varða vinnslu persónuupplýsinga — verða tilkynntar notendum með a.m.k. 30 daga fyrirvara. Þar sem nýjar vinnsluaðgerðir krefjast samþykkis verður slíkt samþykki aflað sérstaklega.
Skilmálar þessir eru staðlaðir samningsskilmálar, samdir einhliða af Leiguskjóli. Notendum er ekki heimilt að breyta, útstrikaða eða bæta við einstök ákvæði skilmálanna af sínu frumkvæði.
Um skilmála þessa og allt þjónustusamband Leiguskjóls og notenda gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur vegna þjónustunnar eða skilmála þessara sem ekki tekst að leysa með samkomulagi, skal sá ágreiningur borinn undir íslenska dómstóla. Aðilar máls semja um að Héraðsdómur Reykjavíkur hafi lögsögu fyrir slík mál, nema annað leiði af ófrávíkjanlegum lagareglum. Skilmálar þessir skulu túlkaðir í samræmi við íslenskan rétt.
Varnarþing samkvæmt þessu ákvæði takmarkar ekki rétt notanda til að höfða mál vegna persónuverndarbrota við dómstól þar sem hann hefur búsetu, skv. 79. gr. GDPR.
Útgáfusaga
| Útgáfa | Dagsetning | Lýsing |
|---|---|---|
| 1.0 | apríl 2025 | Fyrstu greiðsluskilmálar (kröfukaupaskilmálar). |
| 2.0 | mars 2026 | Fullkomin endurskrif sem almennir viðskiptaskilmálar. Viðbætt: þjónustulýsingar, gjaldskrá, ábyrgðartakmörkun, persónuverndarákvæði, lok þjónustusambands og lögsöguákvæði. |