News

Framboð leiguhúsnæðis aldrei verið meira

Eignir sem ekki seljast leita í auknum mæli inn á leigumarkaðinn en misvel gengur að koma þeim út

VM
Vignir Már Lýðsson··2 min read
Framboð leiguhúsnæðis aldrei verið meira

Nýlega birti Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) skýrslu um fasteignamarkaðinn þar sem fram kom að hátt í 2.000 nýjar íbúðir standi auðar og óseldar sem sé um þriðjungur eigna á söluskrá.

Vignir Már Lýðsson, framkvæmdastjóri Igloo, ræddi stöðuna á markaðnum í Speglinum á Rás 1 fimmtudaginn 22. október sl. en margar af þeim íbúðum sem auglýstar hafa verið til sölu eru jafnframt auglýstar til leigu á myigloo.is.

Igloo vaktar eignir á söluskrá og ber saman við þær eignir sem leigðar eru út á vefnum. Þann 30. október voru um 1200 eignir á skrá inni á vefnum, en þar af gætu um 850 - 1.070 flokkast sem virkar. Af þeim voru 288 eða um 27% á söluskrá fasteignavefjanna á síðustu 30 dögum.

Alla jafna er skipting milli eigna í eigu einstaklinga og fyrirtækja nokkuð jöfn. Ef eingöngu íbúðareignir eru skoðaðar þá eru um 42% allra eigna á skrá í eigu fyrirtækja en ef eignir sem byggðar hafa verið eftir 2024 þá er hlutfallið nær 75% í eigu fyrirtækja.

Aldrei hafa jafnmargar eignir verið á skrá hjá Igloo frá upphafi en bæði í september og október voru um 800 eignir skráðar inn til birtingar á vefnum. Í lok júlí 2026 voru um 959 eignir á skrá (um 10% eigna er atvinnuhúsnæði) en í lok október um 1217 eignir svo framboð hefur aukist verulega.

Því skal þó haldið til haga að leigusölum er í sjálfs vald sett hvort þeir fjarlægi eignir en í nóvember stendur til að hreinsa út gamlar auglýsingar sem gætu haft áhrif á niðurstöðuna en skýrsla verður birt um þá hreinsun í lok nóvember. Búist er við að um 15-20% eigna verði fjarlægðar af þeim sökum á fyrstu tveimur vikum nóvembermánaðar.

screenshot-2026-10-30-at-10-27-412026-10-30-10-28-05814689.png

Mynd: 42% íbúðareigna á skrá heilt yfir er í eigu fyrirtækja.

screenshot-2026-10-30-at-10-27-512026-10-30-10-28-11361973.png

Mynd: Hátt í 75% eigna á skrá sem byggðar hafa verið á árabilinu 2024 til 2026 eru í eigu fyrirtækja.

screenshot-2026-10-30-at-10-08-382026-10-30-10-14-23469441.png

Mynd: Um 27% eigna í lok október 2026 sem auglýstar voru til leigu voru jafnframt á söluskrá á síðastliðnum 30 dögum.

Hlekkir á efni á RÚV

Frétt á vef RÚV:

https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-10-22-nyjar-og-oseldar-ibudir-henta-oft-ekki-i-leigu-490667

Viðtal við Vigni í Speglinum:

https://www.ruv.is/utvarp/spila/spegillinn/25249/ajsfho

Related articles

Igloo gerir leigusölum kleift að takmarka hækkanir leiguverðs við verðbólgumarkmið Seðlabankans
News

Igloo gerir leigusölum kleift að takmarka hækkanir leiguverðs við verðbólgumarkmið Seðlabankans

Þótt dregið hafi verulega úr verðtryggingu leigusamninga eftir nýlegar lagabreytingar þá er enn stór hluti leigusala sem tengir samninga sína við vísitölu neysluverðs.Vísitala neysluverðs byggir meðal annars á leiguverði og því getur víðtæk tenging leigusamninga við vísitölu neysluverðs skapað víxláhrif til hækkana umfram það sem eðlilegt væri. Ef allir leigusamningar væru verðtryggðir og myndu hækka mánaðarlega út frá vísitölu neysluverðs færi sú hækkun beint inn í næstu verðbólgumælingu að hluta og myndi viðhalda örlítið hærri verðbólgu en ella.Stjórnvöld hafa gripið til aðgerða sem miða að því að draga úr þessu, s.s. með því að takmarka vísitölutengingu við samninga sem eru

VM
Vignir Már Lýðsson·
Igloo og Straumlind í rafmagnað samstarf fyrir leigjendur
News

Igloo og Straumlind í rafmagnað samstarf fyrir leigjendur

Igloo og raforkusalinn Straumlind hafa tekið höndum saman og bjóða nú leigutökum að einfalda eitt flóknasta skrefið við að flytja.Leigjendur geta nú valið raforkukaup frá Straumlind beint í undirritunarferli leigusamnings hjá Igloo á sama tíma og þeir tryggja sér hagstæðasta verð á rafmagni sem völ er á hverju sinni. Leigutakar sem þurfa að greiða rafmagn geta pantað rafmagn með einum smelli og Straumlind sér um framhaldið og klárar flutninginn í samstarfi við viðeigandi dreifiveitu.Fjarlægjum núningHingað til hefur þetta ferli oft kallað á handvirkar skráningar, eyðublöð, samskipti við marga aðila og óvissu á sama tíma og fólk stendur í flutningum. Samstarf

VM
Vignir Már Lýðsson·